Hótel Bláfell er staðsett á Breiðdalsvík sem er lítil falleg vík á suðurfjörðum austfjarða. Íbúar í Breiðdalshreppi er u.þ.b. 200. Fiskvinnsla og landbúnaður er aðal atvinnugreinin á staðnum. Í þorpinu eru tjaldsvæði með salernisaðstöðu, sundlaug með heitum potti, bensínstöð, verslun, útimarkaður, banki og póstafgreiðsla. Breiðdalsvík stendur við þjóðveg nr. 1 milli Djúpavogs og Stöðvarfjarðar.
Það er um 67 km í Djúpavog, 18 km í Stöðvarfjörð og 82 km í Egilsstaði.

Gagnvirkt kort. Hægt að þysja út til að sjá í samhengi við landið í heild.
