BÓKUNAR BEIÐNI

PÓSTLISTI

Viltu fá nýjustu tilboðin og fréttirnar

Í Breiðdalsvík og nágrenni er margvísleg afþreying í boði. Skemmtilegar gönguleiðír og náttúruskoðun eru vinsælar í Breiðdalnum. Í Breiðdalnum er rekin hestaleiga og sú þjónusta er í boði yfir sumartímann. Í Breiðdalnum er ein þekktasta veiði á landins Breiðdalsá.

Á Breiðdalsvík er glæsileg sundlaug með heitum potti.

Á vormánuðum 2009 opnar jarðfræðisetur á Breiðdalsvík. Setrið er stofnað til heiðurs breska jarðfræðiprófessornum George Leonard Patrick Walker sem starfaði á Austurlandi á árunum 1954 – 1965 og kortlagði stóran hluta austfirskra jarðlaga. Öll rannsóknagögn Dr. Walkers, sem verið hafa hjá fjölskyldu hans í Bretlandi, eru hýst í jarðfræðisafninu á Breiðdalsvík.